Tilkynningar
Nefndadagar 16. og 17. mars
Miðvikudaginn 16. mars og fimmtudaginn 17. mars eru nefndadagar samkvæmt starfsáætlun Alþingis.
Þá funda nefndir allan daginn. Við ákvörðun um fundartíma nefnda er m.a. litið til verkefnastöðu en jafnframt er reynt að tryggja nefndum sem sambærilegastan fundartíma.
Miðvikudagur 16. mars
- 9–12: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd
- 13–15: Þingflokksfundir
- 15–17: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
Fimmtudagur 17. mars
- 9–12: Allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd
- 13–16: Fjárlaganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, utanríkismálanefnd og velferðarnefnd
Endanlegir fundartímar og dagskrár funda birtast venju samkvæmt á vef Alþingis.